20.10.2007 | 23:43
Formannsþankar Stefnis
Eitt af áhugamálum mínum er kórsöngur. Ég hef verið félagi í Karlakórnum Stefni til margra ára, þar fær maður að kljást við raddaðan söng og vera um leið í góðum félagsskap. Eins og gengur og gerist með mörg félagasamtök er sífellt verið að brydda upp á nýjungum varðandi fjáröflun, og gengur misvel.
Nýlega bauðst okkur Stefnismönnum að mæta á áhorfendapallana í skemmtiþætti Sjónvarpsins nokkur laugardagskvöld í röð, gegn því að fá nokkrar krónur á haus fyrir hvern sem mætti. Málið var borið undir félagsmenn, fyrst í tölvupósti og síðan á kóræfingu, en fékk dræmar undirtektir.
Formaður okkar sem jafnframt er hagyrðingur ágætur samdi af þessu tilefni og sendi okkur í tölvupósti í kvöld:
Upp hefur komið sá kvittur
að hver og einn Stefnistittur
afþakki teiti
í Efstaleiti
þótt bjóðist þeim bjór og snittur
Athugasemdir
Þetta´ er orðstýr sem aldregi deyr
þótt alþjóð heyri´ ekki meir.
Á Íslandi´ er kór
sem afþakkar bjór!!
Amen. Aumingja þeir.
Hörður Björgvinsson (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 10:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.